VÖRUMERKI

Bio‑Oil®

VÖRUHEITI OG STÆRÐIR

Gel fyrir þurra húð 50ml

Gel fyrir þurra húð 100ml

Gel fyrir þurra húð 200ml

LÝSING

Gel með 83% olíu fyrir mjög þurra húð.

ÁBENDING

Eykur verulega raka húðarinnar.

ÚTLIT

Appelsínugult/bleikt gel.

INNIHALDSEFNI

Paraffinum Liquidum, Isopropyl Palmitate, Triisononanoin, Glycerin, Cetearyl Ethylhexanoate, Isopropyl Myristate, Aqua, Caprylic/Capric Triglyceride, Isostearyl Isostearate, C26-28 Alkyl Dimethicone, Butyrospermum Parkii Butter, Sodium Lactate, Urea, Gluconolactone, Sodium PCA, Sodium Hyaluronate, Octyldodecyl PCA, Sucrose Laurate, Sucrose Stearate, Lactic Acid, Lanolin, Butylene Glycol, Dimethicone/Vinyl Dimethicone Crosspolymer, Bisabolol, Helianthus Annuus Seed Oil, Silica, Glycine Soja Oil, Retinyl Palmitate, Tocopheryl Acetate, Niacinamide, Linoleic Acid, Linolenic Acid, Tocopherol, Anthemis Nobilis Flower Oil, Calendula Officinalis Extract, Rosmarinus Officinalis Leaf Oil, Lavandula Angustifolia Oil, Parfum, Beta-Caryophyllene, Camphor, Farnesol, Lavandula Oil/Extract, Limonene, Linalool, Linalyl Acetate, Pinene, Terpineol, CI 17200.

KLÍNÍSK RANNSÓKN Á ÞURRI HÚÐ

Rannsóknarsetur

Complife Italia Srl, Ítalía.

Markmið

Klínískt mat til að prófa verkun Bio‑Oil® gels fyrir þurra húð við að bæta rakastig húðarinnar.

Dæmi

Þátttakendur: 40 heilbrigðar konur með Fitzpatrick húðgerð II-V með klínískt þurra/mjög þurra húða (stig II-IV) á ytri neðri fótleggjum og rakamælisgildi undir 40 við upphaf þátttöku. Prófunarstaður: prófunarvara var borin á einn fótlegg í heild sinni hjá öllum þátttakendum. Aldur þátttakenda: 40–65.

Aðferðarfræði

Slembiröðuð klínísk meginrannsókn með samanburði, blinduðum matsaðila og skiptum líkama. Þátttakendur tóku þátt í upphaflegu skimunarmati sem fylgt var eftir með 7 daga tímabili án notkunar (útskolunartímabili), 28 daga meðferðartímabili og 3 daga eftirfylgnitímabili (aðhvarf). Á tímabili án notkunar og meðan á rannsókninni stóð þvoðu þátttakendur fæturna tvisvar á dag með Dove Beauty Bar. Bio‑Oil® gel fyrir þurra húð var borið á húð tvisvar á dag í 28 daga á úthlutað svæði á hlið neðri fótleggs, gagnstæður fótleggur var ekki meðhöndlaður. Klínískt mat og mat með mælitækjum var framkvæmt við skimun, við upphaf og á degi 1, 3, 6, 8, 10, 14, 21, 28, 29, 30 og 31. Ómeðhöndlaða samanburðarsvæðið var einnig metið á öllum tímapunktum. Mat fór fram með eftirfarandi hætti: þátttakendur voru metnir með tilliti til þurrks (á kvarðanum 0–5) og sjónrænn matsaðili sá um matið. Megindleg mæling á rakastigi húðarinnar var framkvæmd með rakamæli („Corneometer“). Framkvæmd var megindleg mæling á vökvatapi í gegnum húðþekju (e. Transepidermal Water Loss, TEWL) með Tewameter-mæli og það var notað sem viðmið um virkni varnarlags.

Niðurstaða

Niðurstaðan fyrir Bio‑Oil® gel fyrir þurra húð var að um væri að ræða tölfræðilega marktæka aukningu á raka, virkni varnarlags og ásýnd þurrar húðar (klínísk flokkun á húðþurrki) við hverja rannsóknarathugun, bæði í samanburði við upphafsgildi og ómeðhöndlað (samanburðar-) svæði. Hvað varðar klíníska flokkun á húðþurrki þá mátti greina tölfræðilega marktækan bata hjá 62% þátttakenda frá 1. degi og hjá meira en 85% þátttakenda frá og með 3. degi. Greina mátti bata hjá 100% þátttakenda frá 21. degi. Á 28. degi mátti greina yfir 3,5-faldan bata hjá þátttakendum miðað við klínískan flokkunarskala á 1. degi. Eftir 28 daga notkun greindust 100% þátttakenda með marktæka aukningu á raka húðarinnar, og var um að ræða næstum tvöfalt meiri bata í samanburði við 1. dag. Að sama skapi, eftir 28 daga notkun, mátti greina marktæka lækkun á TEWL gildum hjá 82% af þátttakendum og var um að ræða yfir 5.5-faldan bata í samanburði við 1. dag. Verkun Bio‑Oil® gels fyrir þurra húð við að bæta raka, virkni varnarlags og ásýnd þurrar húðar var einnig staðfest við 3 daga eftirfylgni, þegar notkun vörunnar hafði verið hætt.

PRÓF Á VIÐKVÆMRI HÚÐ

Rannsóknarsetur

Complife Italia Srl, Ítalía.

Markmið

Að meta hvort Bio‑Oil® gel fyrir þurra húð geti valdið ertingu í húð.

Dæmi

Þátttakendur: 30 þátttakendur; 28 konur og 2 karlar, öll með viðkvæma húð samkvæmt mjólkursýrubrunaprófi. Aldur þátttakenda: 18–70.

Aðferðarfræði

Samanburðarrannsókn. Tvö svæði voru metin: svæði þar sem neikvætt samanburðarefni (steinefnasneytt vatn) var borið á og svæði þar sem Bio‑Oil® gel fyrir þurra húð var borið á. Prófunarvörur voru bornar á baksvæði þátttakenda í 48 klukkustundir með Finn Chamber® búnaði. Húðviðbrögð voru metin undir eftirliti húðsjúkdómalæknis til að meta frumkomna húðertingu við 15 mínútur, 1 klukkustund og 24 klukkustundir eftir að plásturinn var fjarlægður. Húðviðbrögð voru metin á kvarðanum 0–4 (þar sem 0 enginn roði, bjúgur eða annars konar húðerting var til staðar og 4 var alvarlegur roði og bjúgur, sem lýsir sér sem dökkrauður litur og langvarandi þroti út fyrir ásetningarsvæðið).

Niðurstaða

Húðþolsflokkur Bio‑Oil® gels fyrir þurra húð var „ekki ertandi“.

PRÓF TIL AÐ META SVITAHOLUFSTÍFLANDI EIGINLEIKA

Rannsóknarsetur

Complife Italia Srl, Ítalía.

Markmið

Til að meta hvort Bio‑Oil® gel fyrir þurra húð geti haft stíflandi áhrif á svitaholur.

Dæmi

Þátttakendur: 20 þátttakendur; 18 konur og 2 karlar með húð sem er viðkvæm fyrir þrymlabólum (örtum). Aldur þátttakenda: 18–65.

Aðferðarfræði

Samanburðarrannsókn. Varan var borin á síupappírsskífu á efri hluta baks hjá þátttakendum. Plástrar voru látnir sitja í 48 til 72 klukkustundir, fjarlægðir og settir aftur á. Alls voru 12 plástrar settir á 4 vikur í röð. Þrjú svæði voru metin með því að bera saman neikvætt samanburðarefni (steinefnasneytt vatn), prófunarvöruna (Bio‑Oil® gel fyrir þurra húð) og jákvæða samanburðarefnið (lanólínalkóhól, sem vitað er að hafi svitaholustíflandi virkni). Húðviðbrögð voru klínískt metin undir eftirliti húðsjúkdómalæknis 15 mínútum eftir að hver plástur var fjarlægður til að bera saman fjölda stíflaðra svitahola fyrir og eftir hverja ásetningu vörunnar.

Niðurstaða

Bio‑Oil® gel fyrir þurra húð leiddi ekki til stíflaðra svitahola. Svæðið sem Bio‑Oil® gelið fyrir þurra húð var borið á sýndi engan marktækan mun í samanburði við svæðið með neikvæða samanburðarefninu. Jákvæða samanburðarefnið olli þrymlabólum.

RANNSÓKN Á EINANGRANDI ÁHRIFUM

Rannsóknarsetur

Rigano Laboratories, Mílanó, Ítalíu.

Markmið

Að ákvarða með tilraunum einangrandi áhrif Bio‑Oil® gels fyrir þurra húð og þar með leggja mat á getu vörunnar til að hjálpa húðinni að viðhalda raka með því að draga úr TEWL.

Aðferðarfræði

Fyrirfram ákveðnu magni af vatni var komið fyrir í bikarglösum sem þakin voru hálfgegndræpri himnu sem kallast Vitro-Skin™ og líkir eftir yfirborðseiginleikum í húð mannfólks. Varan var borin á himnuna og mælt hvar hversu hratt vatn gufaði upp úr bikarglösunum með tímanum. Þetta var borið saman við hversu hratt vatn gufaði upp úr samanburðarbikarglösum þar sem varan hafði ekki verið borin á himnuna.

Niðurstaða

Aðferðafræðin í prófunum á vatnsgufuflutningshraða (Water Vapour Transmission Rate, WVTR) er staðlað próf til að mæla einangrandi áhrif varanna. Lækkun WVTR-gildis gefur til kynna að tiltekin efnablanda búi yfir einangrandi áhrifum. Bio‑Oil® gel fyrir þurra húð reyndist lækka WVTR-gildi í tölfræðilegum samanburði við ómeðhöndlaða samanburðinn þegar það var borið á Vitro-Skin™ himnuna. Þessar in vitro niðurstöður benda til þess að Bio‑Oil® gel fyrir þurra húð hjálpi húðinni að viðhalda raka in vivo og stuðli þannig að því að draga úr einkennum þurrar húðar.

ÁSETNING

Hvernig á að setja vöruna á

Berið lítið magn af Bio‑Oil® geli fyrir þurra húð á þurra húð eftir þörfum. Ef um er að ræða viðvarandi húðþurrk er mælt með því að það sé borið á tvisvar á dag, kvölds og morgna. Varan var sérstaklega hönnuð fyrir líkamann, en það má einnig nota hana á andlitið. Bio‑Oil® gel fyrir þurra húð er snyrtivara sem er eingöngu ætluð til notkunar útvortis. Ekki skal bera efnið á opin sár eða rofna húð. Forðist snertingu við augu. Ef varan fer í augu skal skola vandlega með vatni. Geymist þar sem að börn ná ekki til. Inniheldur A vítamín. Athugið daglega inntöku fyrir notkun.

Hversu lengi á að nota

Klínísk rannsókn á Bio‑Oil® geli fyrir þurra húð hefur farið fram yfir fjögurra vikna tímabil, sem þýðir að hægt hefur verið að meta hvernig varan virkar yfir tiltekið tímabil. Tölfræðileg greining sýnir fram á verulegan bata á ásýnd húðarinnar eftir eingöngu sólarhring, í sumum tilvikum, og að þessi bati haldist meðan á rannsókninni stendur. Hins vegar má nota Bio‑Oil® gel fyrir þurra húð með áframhaldandi hætti vegna rakagefandi og húðnærandi eiginleika vörunnar, sem þýðir að þessi húðmjólk getur orðið hluti af daglegri húðumhirðu.

Notkun sem hluti af daglegri húðumhirðu

Fyrir hámarks gleypingu ætti að bera Bio‑Oil® gel fyrir þurra húð á húð sem búið er að hreinsa. Ef þú notar sólarvörn eða annars konar krem ​​skaltu aðeins gera það þegar Bio‑Oil® gel fyrir þurra húð hefur dregist að fullu inn í húðina. Ef nota á Bio‑Oil® gel fyrir þurra húð á allan líkamann þá skal gera það eftir sturtu eða bað.

Notkun á meðgöngu

Öruggt er að nota Bio‑Oil® gel fyrir þurra húð á meðgöngu.

A-vítamín og meðganga

Vanalega er konum ráðlagt að takmarka notkun A-vítamíns á meðgöngu og því kann að vera að sumir hafi áhyggjur yfir því að nota húðvörur sem innihalda A-vítamín. Efni sem borið er á húðina getur eingöngu talist skaðleg ef magn er yfir eiturefnafræðilegum viðmiðunarmörkum þess efnis. Þar sem að húðin veitir umtalsverða vörn gegn gegnflæði þá er aðeins brot af því A-vítamíni sem borið er útvortis á húðina sem ratar inn í líkamann. Vísindaráð framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um heilsu- og neytendavernd (European Commission’s Scientific Committee on Consumer Safety, SCCS) hefur lagt mat á A-vítamín og estera þess, þegar það er notað sem innihaldsefni í snyrtivörum. Álit SCCS er að notkun A-vítamíns í húðmjólk, allt að hámarksþéttni 0,05% af retínólígildi, sé örugg. A-vítamínið sem er til staðar í samsetningu Bio‑Oil® gels fyrir þurra húð er langt undir þessari leyfilegu hámarksþéttni fyrir húðmjólk og öruggt er að nota það alla meðgönguna.

Rósmarínolía og meðganga

Rósmarínolía í hárri þéttni (miklu magni) hefur reynst hafa tíðaörvandi áhrif (emmenagogue) og hugsanlega stuðla að snemmbúnum fæðingarhríðum. Þetta er ástæðan þess að ilmkjarnaolíufræðingar og grasalæknar sem nota rósmarínolíu í hárri þéttni, mæla gegn því að olían sé notuð meðan á meðgöngu stendur. Hins vegar er þéttni rósmarínolíu í Bio‑Oil® geli fyrir þurra húð mjög lág og því öruggt að nota vöruna meðan á meðgöngu stendur.

Notkun meðan á brjóstagjöf stendur

Öruggt er að nota Bio‑Oil® gel fyrir þurra húð meðan á brjóstagjöf stendur, en forðast skal að bera vöruna á geirvörturnar. Þó ekki séu líkur á skaðlegum áhrifum þá eru ungabörn afar viðkvæm og þess skal gætt að þau innbyrði ekki Bio‑Oil® gel fyrir þurra húð.

Notkun hjá börnum og ungabörnum

Öryggi þess að nota Bio‑Oil® gel fyrir þurra húð á börn yngri en þriggja ára hefur ekki verið metið. Á fyrstu árum eftir fæðingu eiga sér stað ýmsar breytingar á mannslíkamanum, þar með talið uppbygging ónæmiskerfisins. Því er eingöngu mælt með því að efnið sé notað á börn þriggja ára og eldri.

Notkun í sólinni

Prófanir sem gerðar voru á Bio‑Oil® geli fyrir þurra húð sýna að varan örvar hvorki né eykur sólbruna. Vöruna er því óhætt að nota í sólinni, en hún veitir enga vörn gegn skaðlegum áhrifum útfjólublárra geisla sólarinnar (UVA og UVB) og því er mikilvægt að nota með vörunni breiðvirka sólarvörn með sólarvarnarstuðli (SPF) að minnsta kosti 30.

Notkun á eða nálægt slímhúð

Bio‑Oil® gel fyrir þurra húð hefur verið flokkað sem öruggt til allra nota, hins vegar hefur öryggi þess ekki verið prófað hvað varðar snertingu við slímhúð, þar sem þetta er ekki fyrirsjáanleg notkun vörunnar.

Notkun í tengslum við geislameðferð eða krabbameinslyfjameðferð

Bio‑Oil® gel fyrir þurra húð er snyrtivara. Ráðlegt er fyrir fólk sem er í geisla- eða krabbameinslyfjameðferð að leita ráða hjá lækni áður en varan er notuð.

Notkun samhliða lyfjum

Bio‑Oil® gel fyrir þurra húð er snyrtivara. Til að fá ráðleggingar varðandi notkun vörunnar samhliða notkun lyfja er best að leita ráða hjá lækni.

Notkun á viðkvæma húð

Bio‑Oil® gel fyrir þurra húð má nota á viðkvæma húð. Í rannsókn á ertingu í húð sem gerð var hjá 30 þátttakendum á aldrinum 18–70 ára með viðkvæma húð, fundi engir þátttakenda fyrir aukaverkunum við notkun Bio‑Oil® gels fyrir þurra húð.

Notkun á feita húð

Bio‑Oil® gel fyrir þurra húð má nota á feita húð. Í rannsókn sem gerð var hjá 20 þátttakendum á aldrinum 18–65 ára með húð sem er viðkvæm fyrir þrymlabólum, kom fram að Bio‑Oil® gel fyrir þurra húð var ekki svitaholustíflandi.

Notkun á húð sem er viðkvæm fyrir þrymlabólum

Bio‑Oil® gel fyrir þurra húð má nota á húð sem er viðkvæm fyrir þrymlabólum. Í rannsókn sem gerð var hjá 20 þátttakendum á aldrinum 18–65 ára með húð sem er viðkvæm fyrir þrymlabólum, kom fram að Bio‑Oil® gel fyrir þurra húð var ekki svitaholustíflandi. Ráðlegt er að fólk sem þjáist af þrymlabólum leiti ráða hjá lækni áður en það notar Bio‑Oil® gel fyrir þurra húð.

EINKENNI OG ORSAKIR HÚÐÞURRKS

Einkenni

Einkenni þurrar húðar eru meðal annars dauf og flagnandi húð, fínar línur, grá eða öskulit húð og húð sem virkar gróf og strekkt við snertingu.

Orsakir

Þurra húð má rekja til bæði ytri og innri þátta. Ytri þættir: Þurrt loftslag dregur raka úr húðinni, í gegnum fitutvílagið og út í þurrt útiloftið. Loftræstitæki og hitarar draga raka úr loftinu og skapa tilbúið þurrt loftslag sem dregur raka úr húðinni. Daglegur þvottur og útsetning fyrir sterkum þvottaefnum veldur því að fitutvílag húðarinnar er fjarlægt, sem þýðir að raki á auðveldara með að sleppa úr húðinni. Innri þættir: Þegar líkaminn eldist framleiðir húðin færri lípíð (fita) sem veldur því að fitutvílagið þynnist og raki á auðveldara með að sleppa úr húðinni. Erfðir geta átt þátt í því að fólk þróar með sér þurra húð vegna þess að það er með lægri gildi keramíðs í fitutvílaginu frá náttúrunnar hendi. Þetta dregur úr stíflun á varnarlagi húðarinnar, sem stuðlar að rakatapi sem er hærra en eðlilegt getur talist. Virkni á varnarlagi húðarinnar er meðal annars háð pH-gildi (sýrustigi) húðarinnar. Hærra pH-gildi húðarinnar raskar eðlilegri virkni fitutvílagsins.

ÖRYGGISMAT

Viðurkenndur eituefnafræðingur hefur framkvæmt öryggismat á Bio‑Oil® geli fyrir þurra húð og hefur varan verið flokkuð sem örugg fyrir fyrirhugaða notkun hennar fyrir fullorðna, þar með talið barnshafandi konur og konur með barn/börn á brjósti, og börn eldri en þriggja ára.

AUKAVERKANIR

Þó að Bio‑Oil® gel fyrir þurra húð búi yfir öruggum eiturefnafræðilegu sniði og uppfylli alþjóðlegar reglur að þessu leyti þá er, eins og á við um allar snyrtivörur, alltaf einhver hætta á að notendur Bio‑Oil® gels fyrir þurra húð finni fyrir aukaverkunum við notkun vörunnar. Ef aukaverkun kemur fram skal hætta notkun vörunnar tafarlaust. Einkenni aukaverkana í húð geta verið útbrot, þroti og bólga, sem myndi vanalega koma fram á svæðinu þar sem varan var borin á. Þessum aukaverkunum í húð getur fylgt kláði og lítilsháttar óþægindi. Í flestum tilvikum hverfa aukaverkanirnar innan tveggja til þriggja daga eftir að notkun vörunnar er hætt. Þar til hún er komin aftur í upprunalegt ástand getur húðin virst þurr og flagnað á meðan aukaverkanirnar eru að ganga til baka. Ef þú hefur áhyggjur af hugsanlegri ofnæmissvörun við notkun Bio‑Oil® gels fyrir þurra húð, er skynsamlegt að framkvæma einfalt ofnæmispróf til að athuga það. Þetta er gert með því að bera lítið magn af vörunni á innanverðan framhandlegginn og bíða í sólarhring til að sjá hvort einhver viðbrögð koma fram. Áberandi roði í húð (húðroði) eða lítilsháttar þroti í húð (bjúgur) getur bent til hugsanlegra ofnæmisviðbragða.

OFNÆMISVALDAR

Eins og með flesta ofnæmisvalda þá er þessa að finna í plöntuolíum og ilmefnum. Þeir eru: Beta-Caryophyllene, Camphor, Farnesol, Lavandula Oil/Extract, Limonene, Linalool, Linalyl Acetate, Pinene, Terpineol.

INNTAKA FYRIR SLYSNI

Ef Bio‑Oil® gel fyrir þurra húð er tekið inn fyrir slysni er ólíklegt að vart verði við aukaverkanir umfram ógleði og niðurgang, vegna þess að Bio‑Oil® gel fyrir þurra húð er ekki eitrað. Hins vegar er mælt með því að leita læknis, sérstaklega ef ungabarn eða barn innbyrðir vöruna fyrir slysni.

TÍMI FRÁ OPNUN (Period After Opening, PAO)

Bio‑Oil® gel fyrir þurra húð er með 12 mánaða PAO. Þetta er sá tími frá opnun þar sem varan getur talist örugg og hægt er að nota hana án þess að valda neytanda skaða.

FRAMLEIÐSLA

Framleiðsla á Bio‑Oil® geli fyrir þurra húð samræmist kröfum um góða framleiðsluhætti (GMP) ISO 22716:2007 fyrir snyrtivörur. Öllu hráefni sem notað er við framleiðslu á Bio‑Oil® geli fyrir þurra húð fylgir greiningarvottorð (Certificate of Analysis, COA) og öllum umbúðum fylgir samræmisvottorð (Certificate of Conformance, COC). Ekkert hráefni eða umbúðaefni fer í framleiðslu fyrr en þau hafa staðist gæðaeftirlitspróf. Sérhverri framleiðslulotu á Bio‑Oil® geli fyrir þurra húð er úthlutað einkvæmu lotunúmeri. Sýni úr lotunni er prófað í rannsóknarstofu með tilliti til ásýndar, litar, lyktar, auðkenningar með litrófsmælingu, þéttleika, seigju og örverufræðilegra þátta. Sýnið er varðveitt í fjögur ár. Áfylling og pökkun á Bio‑Oil® geli fyrir þurra húð fer fram í hita- og rakastýrðu umhverfi. Loftið fer í gegnum svifefnasíukerfi til að koma í veg fyrir rykmengun. Starfsmenn sem vinna við framleiðslulínur klæðast höfuðbúnaði, andlitsgrímum, andlitshlífum, hönskum, yfirhöfnum og skóhlífum. Sýni eru tekin úr framleiðslulínunni með reglulegu millibili og eru þau eru send til skoðunar hjá gæðaeftirliti til að fyrirbyggja óreglulega galla. Lotunúmer er prentað á túpuna, öskjuna og sendingarumbúðir og varðveislusýni sem tekið er úr hverri framleiðslulotu er varðveitt í fjögur ár.

GEYMSLUSKILYRÐI

Bio‑Oil® gel fyrir þurra húð skal geyma á köldum stað, fjarri beinu sólarljósi.

ENDURVINNSLA

Allar umbúðir af Bio‑Oil® geli fyrir þurra húð (flaska, lok og askja) eru endurvinnanlegar.

VOTTANIR

Bio‑Oil® gel fyrir þurra húð er vottað Halaal og Kosher.

EKKI PRÓFAÐ Á DÝRUM

Bio‑Oil® gel fyrir þurra húð og hráefni þess eru framleidd í samræmi við reglugerðir ESB um dýraprófanir fyrir snyrtivörur. Hvorki Bio‑Oil® gel fyrir þurra húð, né nokkurt innihaldsefni þess, eru prófuð á dýrum, hvorki af Bio‑Oil né neinum hráefnabirgjum fyrirtækisins.

EKKI VEGAN

Bio‑Oil® gel fyrir þurra húð inniheldur lanólín sem er vax unnið úr kindaull. Því telst Bio‑Oil® gel fyrir þurra húð ekki vera grænkeravænt (vegan).

BREYTT ÚTLIT

Það eru tvenns konar aðstæður sem geta valdið breytingum á útliti Bio‑Oil® gels fyrir þurra húð. Fyrri aðstæður myndast þegar gelið verður fyrir mjög háum eða lágum hita til lengri tíma; mikil hækkun hitastigs þurrkar yfirborð gelsins, áhrif þess verða meiri þegar ílátið er skilið eftir opið. Á hinn bóginn getur afar lágt hitastig valdið því að efnablandan frýs. Báðar aðstæður geta valdið því að gelið tekur á sig hvítan lit. Aðrar aðstæður myndast fram þegar vatn, eða annars konar vökvi, fer ofan í krukkuna meðan á notkun stendur. Vökvinn veldur verkun á ýruefnið í samsetningunni og veldur fleytiáhrifum, sem veldur því að gelið verður hvítt og áferð þess breytist.

UMBÚÐIR

Vörumynd af Bio‑Oil gel fyrir þurra húð