VÖRUMERKI

Bio‑Oil®

VÖRUHEITI OG STÆRÐIR

Húðkrem 175ml

Húðkrem 250ml

LÝSING

Líkamskrem með 42% olíu fyrir daglega rakagjöf.

ÁBENDING

Eykur verulega raka húðarinnar.

ÚTLIT

Hvítur vökvi.

INNIHALDSEFNI

Aqua, Dimethicone, Isopropyl Palmitate, Ethylhexyl Cocoate, Isododecane, Isopropyl Myristate, Urea, Polyglyceryl-2 Dipolyhydroxystearate, Glycerin, Pentylene Glycol, Dicaprylyl Carbonate, Polyglyceryl-3 Diisostearate, Sodium Lactate, Dipentaerythrityl Hexacaprylate / Hexacaprate, Gluconolactone, Rosa Canina Fruit Oil, Simmondsia Chinensis Seed Oil, Calendula Officinalis Extract, Butyrospermum Parkii Oil, Helianthus Annuus Seed Oil, Glycine Soja Oil, Isostearyl Isostearate, Bisabolol, Octyldodecyl PCA, Retinyl Palmitate, Tocopheryl Acetate, Linoleic Acid, Linolenic Acid, Tocopherol, Sodium PCA, Sodium Hyaluronate, Lactic Acid, Stearalkonium Hectorite, Propylene Carbonate.

KLÍNÍSK RANNSÓKN Á ÞURRI HÚÐ

Rannsóknarsetur

Complife Italia Srl, Ítalía.

Markmið

Klínískt mat til að prófa verkun Bio‑Oil® húðkrems við að bæta húðrakastig.

Dæmi

Þátttakendur: 30 heilbrigðir kvenkyns þátttakendur með húð af gerðinni Fitzpatrick II-V með klínísk einkenni þurrar eða mjög þurrar húðar á utanverðum neðri fótleggjum. Prófunarstaður: prófunarvara var borin á utanverðan, neðri fótlegg hjá öllum þátttakendum. Aldur þátttakenda: 25–65.

Aðferðarfræði

Slembiröðuð klínísk meginrannsókn með samanburði, blinduðum matsaðila og skiptum líkama. Þátttakendur þvoðu fótleggi með sápu til að framkalla þurra húð yfir 7 daga tímabil. Klínískt mat og mat með mælitækjum fór fram á upphafsgildi. Bio‑Oil® húðkrem var borið á húð tvisvar á dag í 28 daga á úthlutað svæði á hlið neðri fótleggs, gagnstæður fótleggur var ekki meðhöndlaður. Klínískt mat og mat með mælitækjum var framkvæmt á degi 1, 3, 6, 8, 10, 14, 21 og 28. Ómeðhöndlaða samanburðarsvæðið var einnig metið á öllum tímapunktum. Klínískt mat var framkvæmt á þátttakendum með tilliti til þurrks (á kvarðanum 0–5) og sjónrænn matsaðili sá um matið. Megindleg mæling á rakastigi húðarinnar var framkvæmd með rakamæli („Corneometer“). Framkvæmd var megindleg mæling á vökvatapi í gegnum húðþekju (e. Transepidermal Water Loss, TEWL) með Tewameter-mæli og það var notað sem viðmið um virkni varnarlags. Að auki var sjálfsmatsspurningalisti fylltur út á degi 8 og 14.

Niðurstaða

Í samanburði við svæðið sem ekki var meðhöndlað, var ljóst að meðferð með Bio‑Oil® húðkremi leiddi til tölfræðilega marktæks bata samkvæmt klínískri flokkun á húðþurrki og mælingum með Tewameter og rakamæli, strax frá fyrsta degi og á öllum tímapunktum. Fyrir klíníska flokkun á húðþurrki mátti greina tölfræðilega marktækan bata hjá 96,7% þátttakenda frá og með 14. degi, sem markar næstum tvisvar sinnum meiri bata en greina mátti á 1. degi. Eftir 28 daga notkun sýndu 100% þátttakenda marktæka aukningu á raka húðarinnar, og var um að ræða næstum fjórfalt meiri bata í samanburði við 1. dag. Að sama skapi, eftir 28 daga notkun, mátti greina marktæka lækkun á TEWL gildum hjá 100% af þátttakendum og var um að ræða yfir tvöfalt meiri bata í samanburði við 1. dag. Þessi árangur er studdur af niðurstöðum sjálfsmatsspurningalistans.

NOTANDARANNSÓKN Á ÞURRI HÚÐ

Rannsóknarsetur

Ayton Global Research, Bretlandi.

Markmið

Til að meta árangur Bio‑Oil® húðkrems sem rakakrem fyrir líkamann.

Dæmi

Þátttakendur: 117 kvenkyns þátttakendur við góða heilsu. Aldur þátttakenda: 18–65.

Aðferðarfræði

Tveggja vikna heimarannsókn notanda á einni vöru. Þátttakendur fengu leiðbeiningar um að bera vöruna á sig tvisvar á dag, kvölds og morgna. Vörunni er nuddað í húðina þar til hún hefur dregist inn að fullu. Þrír stuttir spurningalistar voru fylltir út: sá fyrsti eftir fyrstu ásetningu vörunnar, annar eftir 12 klukkustundir og sá þriðji eftir að búið var að nota vöruna í tvær vikur.

Niðurstaða

Ásetning: 95% þátttakenda voru sammála um að „varan væri léttari en nokkurt rakakrem sem þeir höfðu notað áður“. 93% þátttakenda voru sammála um að „varan dreifist betur en nokkurt rakakrem sem þeir höfðu notað áður“. Gleyping: 82% þátttakenda voru sammála um að „húðin dragi í sig vöruna betur en nokkuð rakakrem sem þeir höfðu notað áður“. 75% þátttakenda voru sammála um að „húðin dragi í sig vöruna hraðar en nokkuð rakakrem sem þeir höfðu notað áður“. 74% þátttakenda voru sammála um að „varan skilji ekki eftir sig fitukenndar leifar eftir notkun“. 86% þátttakenda voru sammála um að „hægt hafi verið að klæða sig strax eftir að hafa notað vöruna“. Rakastig: 93% þátttakenda voru sammála um að „varan veiti húðinni strax raka“. 92% þátttakenda voru sammála um að „eftir að hafa borið vöruna á húðina þá finnist þeim húðin slétt og silkimjúk“. 90% þátttakenda voru sammála um að „hafa fundið fyrir auknum raka í húðinni allan daginn“ og 91% voru sammála því að „húðin þeirra hefði haldist slétt og silkimjúk allan daginn“. 92% þátttakenda voru sammála um að „húðin liti betur út en hún gerði við upphaf 2 vikna tímabilsins“. Á heildina litið: 73% þátttakenda voru sammála um að „varan væri betri en nokkurt rakakrem sem þeir hafi notað áður“.

PRÓF Á VIÐKVÆMRI HÚÐ

Rannsóknarsetur

Complife Italia Srl, Ítalía.

Markmið

Að meta hvort Bio‑Oil® húðkrem geti valdið ertingu í húð.

Dæmi

Þátttakendur: 25 þátttakendur; 22 konur og 3 karlar, öll með viðkvæma húð samkvæmt mjólkursýrubrunaprófi. Aldur þátttakenda: 18–70.

Aðferðarfræði

Samanburðarrannsókn. Tvö svæði voru metin: svæði þar sem neikvætt samanburðarefni (steinefnasneytt vatn) var borið á og svæði þar sem Bio‑Oil® húðkrem var borið á. Prófunarvörur voru bornar á baksvæði þátttakenda, þar sem þær voru í snertingu við yfirborð húðar í 48 klukkustundir með Finn Chamber® búnaði. Húðviðbrögð voru metin undir eftirliti húðsjúkdómalæknis til að meta frumkomna húðertingu við 15 mínútur, 1 klukkustund og 24 klukkustundir eftir að plásturinn var fjarlægður. Húðviðbrögð voru metin á kvarðanum 0–4 (þar sem 0 enginn roði, bjúgur eða annars konar húðerting var til staðar og 4 var alvarlegur roði og bjúgur, sem lýsir sér sem dökkrauður litur og langvarandi þroti út fyrir ásetningarsvæðið).

Niðurstaða

Húðþolsflokkur Bio‑Oil® húðkrems var „ekki ertandi“.

PRÓF TIL AÐ META SVITAHOLUFSTÍFLANDI EIGINLEIKA

Rannsóknarsetur

Complife Italia Srl, Ítalía.

Markmið

Til að meta hvort Bio‑Oil® húðkrem geti haft stíflandi áhrif á svitaholur.

Dæmi

Þátttakendur: 20 þátttakendur; 14 konur og 6 karlar með ýmsar Fitzpatrick húðgerðir, með húð sem er viðkvæm fyrir þrymlabólum. Aldur þátttakenda: 18–65.

Aðferðarfræði

Samanburðarrannsókn. Varan var borin á síupappírsskífu á efri hluta baks hjá þátttakendum. Plástrar voru látnir sitja í 48 til 72 klukkustundir, fjarlægðir og settir aftur á. Alls voru 12 plástrar settir á 4 vikur í röð. Þrjú svæði voru metin með því að bera saman neikvætt samanburðarefni (steinefnasneytt vatn), prófunarvöruna (Bio‑Oil® húðkrem) og jákvæða samanburðarefnið (lanólínalkóhól, sem vitað er að hafi svitaholustíflandi virkni). Húðviðbrögð voru klínískt metin undir eftirliti húðsjúkdómalæknis 15 mínútum eftir að hver plástur var fjarlægður til að bera saman fjölda stíflaðra svitahola fyrir og eftir hverja ásetningu vörunnar.

Niðurstaða

Bio‑Oil® húðkrem leiddi ekki til stíflaðra svitahola. Svæðið sem Bio‑Oil® húðkremið var borið á sýndi engan marktækan mun í samanburði við svæðið með neikvæða samanburðarefninu. Jákvæða samanburðarefnið olli þrymlabólum.

SEIGJURANNSÓKN

Rannsóknarsetur

Union Swiss, Suður-Afríka.

Markmið

Innanhússrannsókn til að meta hreyfðarseigju Bio‑Oil® húðkrems í samanburði við svipaðar rakagefandi vörur.

Dæmi

Samanburður á Bio‑Oil® húðkremi við 13 rakagefandi vörur sem framleiddar eru af 10 alþjóðlegum vörumerkjum sem eiga sér langa sögu í framleiðslu rakagefandi vara.

Aðferðarfræði

Hreyfðarseigja var greind með Anton Paar RheoLab QC vökvarennslismæli, með snældu CC 39, hraði: 200 snúninga á mínútu við 20°C, skjálftahraði: 155.

Niðurstaða

Bio‑Oil® húðkrem reyndist hafa 7,5 sinnum minni sveigjanleika en meðaltal samkeppnisaðila (94 mPa.s vs. 707 mPa.s í þeirri röð), sem gefur til kynna þynnri og léttari vökva sem frásogast auðveldlega og hratt.

ÁSETNING

Hvernig á að setja vöruna á

Bio‑Oil® húðkremi er nuddað í hringlaga hreyfingum á líkamann þar til það hefur dregist að fullu inn í húðina. Mælt er með því að Bio‑Oil® húðkrem sé borið á tvisvar á dag, kvölds og morgna. Ekki ætti að bera Bio‑Oil® húðkrem á opin sár eða rofna húð. Þetta er snyrtivara sem er eingöngu ætluð til notkunar útvortis. Forðist snertingu við augu. Ef varan fer í augu skal skola vandlega með vatni. Geymist þar sem að börn ná ekki til. Inniheldur A vítamín. Athugið daglega inntöku fyrir notkun.

Hristist fyrir notkun

Bio‑Oil® húðkrem er fleyti þar sem vatnið og olían eru bundin mjög létt saman. Bindingin er svo létt að þegar þær eru látnar standa rísa sumar olíurnar upp á yfirborð efnisins og mynda þunnt lag. Með því að hrista vöruna gætilega fyrir notkun er hægt að blanda olíulaginu aftur í húðkremið. Lagmyndun getur tekið allt frá þremur dögum til þriggja vikna og er háð þáttum eins og hitastigi og hversu kröftuglega og hversu oft flaskan er hrist. Það eitt að nota vöruna daglega, snúa flöskunni á hvolf þegar efninu er skammtað út, er meira en nóg til að tryggja að þetta olíulag myndist ekki. Ef olíulag hefur myndast og vörunni er skammtað út án þess að hrista hana getur verið að tær olíublanda komi úr flöskunni. Í þessu fellst engin hætta fyrir neytendur.

Hversu lengi á að nota

Klínísk rannsókn á Bio‑Oil® húðkremi hefur farið fram yfir fjögurra vikna tímabil, sem þýðir að hægt hefur verið að meta hvernig varan virkar yfir tiltekið tímabil. Tölfræðileg greining sýnir fram á verulegan bata á ásýnd húðarinnar eftir eingöngu sólarhring, í sumum tilvikum, og að þessi bati haldist meðan á rannsókninni stendur. Hins vegar má nota Bio‑Oil® húðkrem með áframhaldandi hætti vegna rakagefandi og húðnærandi eiginleika vörunnar, sem þýðir að þetta húðkrem getur orðið hluti af daglegri húðumhirðu.

Notkun sem hluti af daglegri húðumhirðu

Fyrir hámarks gleypingu ætti að bera Bio‑Oil® húðkrem á húð sem búið er að hreinsa. Ef þú notar sólarvörn eða annars konar krem ​​skaltu aðeins gera það þegar Bio‑Oil® húðkrem hefur dregist að fullu inn í húðina. Ef nota á Bio‑Oil® húðkrem á allan líkamann þá skal gera það eftir sturtu eða bað.

Notkun á meðgöngu

Óhætt er að nota Bio‑Oil® húðkrem á meðgöngu.

A-vítamín og meðganga

Vanalega er konum ráðlagt að takmarka notkun A-vítamíns á meðgöngu og því kann að vera að sumir hafi áhyggjur yfir því að nota húðvörur sem innihalda A-vítamín. Efni sem borið er á húðina getur eingöngu talist skaðleg ef magn er yfir eiturefnafræðilegum viðmiðunarmörkum þess efnis. Þar sem að húðin veitir umtalsverða vörn gegn gegnflæði þá er aðeins brot af því A-vítamíni sem borið er útvortis á húðina sem ratar inn í líkamann. Vísindaráð framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um heilsu- og neytendavernd (European Commission’s Scientific Committee on Consumer Safety, SCCS) hefur lagt mat á A-vítamín og estera þess, þegar það er notað sem innihaldsefni í snyrtivörum. Álit SCCS er að notkun A-vítamíns í húðmjólk, allt að hámarksþéttni 0,05% af retínólígildi, sé örugg. A-vítamínið sem er til staðar í samsetningu Bio‑Oil® húðkremsins er langt undir þessari leyfilegu hámarksþéttni fyrir húðmjólk og öruggt er að nota það alla meðgönguna.

Notkun meðan á brjóstagjöf stendur

Öruggt er að nota Bio‑Oil® húðkrem á líkamann meðan á brjóstagjöf stendur, en mælt er með því að forðast að bera það á geirvörturnar. Þó ekki séu líkur á skaðlegum áhrifum þá eru ungabörn afar viðkvæm og þess skal gætt að þau innbyrði ekki Bio‑Oil® húðkrem, jafnvel í mjög litlu magni.

Notkun hjá börnum og ungabörnum

Öryggi þess að nota Bio‑Oil® húðkrem á börn yngri en þriggja ára hefur ekki verið metið. Á fyrstu árum eftir fæðingu eiga sér stað ýmsar breytingar á mannslíkamanum, þar með talið uppbygging ónæmiskerfisins. Því er eingöngu mælt með því að efnið sé notað á börn þriggja ára og eldri.

Notkun í sólinni

Prófanir sem gerðar voru á Bio‑Oil® húðkremi sýna að varan örvar hvorki né eykur sólbruna. Vöruna er því óhætt að nota í sólinni, en hún veitir enga vörn gegn skaðlegum áhrifum útfjólublárra geisla sólarinnar (UVA og UVB) og því er mikilvægt að nota með vörunni breiðvirka sólarvörn með sólarvarnarstuðli (SPF) að minnsta kosti 30.

Notkun á eða nálægt slímhúð

Bio‑Oil® húðkrem hefur verið flokkað sem öruggt til allra nota, hins vegar hefur öryggi þess ekki verið prófað hvað varðar snertingu við slímhúð, þar sem þetta er ekki fyrirsjáanleg notkun vörunnar.

Notkun í tengslum við geislameðferð eða krabbameinslyfjameðferð

Bio‑Oil® húðkrem er snyrtivara. Ráðlegt er fyrir fólk sem er í geisla- eða krabbameinslyfjameðferð að leita ráða hjá lækni áður en varan er notuð.

Notkun samhliða lyfjum

Bio‑Oil® húðkrem er snyrtivara. Til að fá ráðleggingar varðandi notkun vörunnar samhliða notkun lyfja er best að leita ráða hjá lækni.

Notkun á viðkvæma húð

Bio‑Oil® húðkrem má nota á viðkvæma húð. Í rannsókn á ertingu í húð sem gerð var hjá 25 þátttakendum á aldrinum 18–70 ára með viðkvæma húð, fengu engir þátttakenda aukaverkanir við notkun efna samsetningarinnar.

Notkun á feita húð

Bio‑Oil® húðkrem má nota á feita húð. Í rannsókn sem gerð var hjá 20 þátttakendum á aldrinum 18–65 ára með húð sem er viðkvæm fyrir þrymlabólum (örtum), kom í ljós að Bio‑Oil® húðkrem var ekki svitaholustíflandi.

Notkun á húð sem er viðkvæm fyrir þrymlabólum

Bio‑Oil® húðkrem má nota á húð sem er viðkvæm fyrir þrymlabólum. Í rannsókn sem gerð var hjá 20 þátttakendum á aldrinum 18–65 ára með húð sem er viðkvæm fyrir þrymlabólum, kom fram að Bio‑Oil® húðkrem var ekki svitaholustíflandi. Ráðlegt er að fólk sem þjáist af þrymlabólum leiti ráða hjá lækni áður en það notar Bio‑Oil® húðkrem.

EINKENNI OG ORSAKIR HÚÐÞURRKS

Einkenni

Einkenni þurrar húðar eru meðal annars dauf og flagnandi húð, fínar línur, grá eða öskulit húð og húð sem virkar gróf og strekkt við snertingu.

Orsakir

Þurra húð má rekja til bæði ytri og innri þátta. Ytri þættir: Þurrt loftslag dregur raka úr húðinni, í gegnum fitutvílagið og út í þurrt útiloftið. Loftræstitæki og hitarar draga raka úr loftinu og skapa tilbúið þurrt loftslag sem dregur raka úr húðinni. Daglegur þvottur og útsetning fyrir sterkum þvottaefnum veldur því að fitutvílag húðarinnar er fjarlægt, sem þýðir að raki á auðveldara með að sleppa úr húðinni. Innri þættir: Þegar líkaminn eldist framleiðir húðin færri lípíð (fita) sem veldur því að fitutvílagið þynnist og raki á auðveldara með að sleppa úr húðinni. Erfðir geta átt þátt í því að fólk þróar með sér þurra húð vegna þess að það er með lægri gildi keramíðs í fitutvílaginu frá náttúrunnar hendi. Þetta dregur úr stíflun á varnarlagi húðarinnar, sem stuðlar að rakatapi sem er hærra en eðlilegt getur talist. Virkni á varnarlagi húðarinnar er meðal annars háð pH-gildi (sýrustigi) húðarinnar. Hærra pH-gildi húðarinnar raskar eðlilegri virkni fitutvílagsins.

ÖRYGGISMAT

Viðurkenndur eituefnafræðingur hefur framkvæmt öryggismat á Bio‑Oil® húðkremi og hefur varan verið flokkuð sem örugg fyrir fyrirhugaða notkun hennar fyrir fullorðna, þar með talið barnshafandi konur og konur með barn/börn á brjósti, og börn eldri en þriggja ára.

AUKAVERKANIR

Þó að Bio‑Oil® húðkrem búi yfir öruggum eiturefnafræðilegu sniði og uppfylli alþjóðlegar reglur að þessu leyti þá er, eins og á við um allar snyrtivörur, alltaf einhver hætta á að notendur Bio‑Oil® húðkrems finni fyrir aukaverkunum við notkun vörunnar. Ef aukaverkun kemur fram skal hætta notkun vörunnar tafarlaust. Einkenni aukaverkana í húð geta verið útbrot, þroti og bólga, sem myndi vanalega koma fram á svæðinu þar sem varan var borin á. Þessum aukaverkunum í húð getur fylgt kláði og lítilsháttar óþægindi. Í flestum tilvikum hverfa aukaverkanirnar innan tveggja til þriggja daga eftir að notkun vörunnar er hætt. Þar til hún er komin aftur í upprunalegt ástand getur húðin virst þurr og flagnað á meðan aukaverkanirnar eru að ganga til baka. Ef þú hefur áhyggjur af hugsanlegri ofnæmissvörun við notkun Bio‑Oil® húðkrems, er skynsamlegt að framkvæma einfalt ofnæmispróf til að athuga það. Þetta er gert með því að bera lítið magn af Bio‑Oil® húðkremi á innanverðan framhandlegginn og bíða í sólarhring til að sjá hvort einhver viðbrögð koma fram. Áberandi roði í húð (húðroði) eða lítilsháttar þroti í húð (bjúgur) getur bent til hugsanlegra ofnæmisviðbragða.

INNTAKA FYRIR SLYSNI

Ef Bio‑Oil® húðkrem er tekið inn fyrir slysni er ólíklegt að vart verði við aukaverkanir umfram ógleði og niðurgang, vegna þess að Bio‑Oil® húðkrem er ekki eitrað. Hins vegar er mælt með því að leita læknis, sérstaklega ef ungabarn eða barn innbyrðir vöruna fyrir slysni.

TÍMI FRÁ OPNUN (Period After Opening, PAO)

Bio‑Oil® húðkrem er með 12 mánaða PAO. Þetta er sá tími frá opnun þar sem varan getur talist örugg og hægt er að nota hana án þess að valda neytanda skaða.

FRAMLEIÐSLA

Framleiðsla á Bio‑Oil® húðkremi samræmist kröfum um góða framleiðsluhætti (GMP) ISO 22716:2007 fyrir snyrtivörur. Öllu hráefni sem notað er við framleiðslu á Bio‑Oil® húðkremi fylgir greiningarvottorð (Certificate of Analysis, COA) og öllum umbúðum fylgir samræmisvottorð (Certificate of Conformance, COC). Ekkert hráefni eða umbúðaefni fer í framleiðslu fyrr en þau hafa staðist gæðaeftirlitspróf. Sérhverri framleiðslulotu á Bio‑Oil® húðkremi er úthlutað einkvæmu lotunúmeri. Sýni úr lotunni er prófað í rannsóknarstofu með tilliti til ásýndar, litar, lyktar, auðkenningar með litrófsmælingu, þéttleika, seigju og örverufræðilegra þátta. Sýnið er varðveitt í fjögur ár. Fylling og pökkun á Bio‑Oil® húðkremi fer fram í hita- og rakastýrðu umhverfi. Loftið fer í gegnum svifefnasíukerfi til að koma í veg fyrir rykmengun. Starfsmenn sem vinna við framleiðslulínur klæðast höfuðbúnaði, andlitsgrímum, andlitshlífum, hönskum, yfirhöfnum og skóhlífum. Sýni eru tekin úr framleiðslulínunni með reglulegu millibili og eru þau eru send til skoðunar hjá gæðaeftirliti til að fyrirbyggja óreglulega galla. Lotunúmer er prentað á flöskuna, öskjuna og sendingarumbúðir og varðveislusýni sem tekið er úr hverri framleiðslulotu er varðveitt í fjögur ár.

GEYMSLUSKILYRÐI

Bio‑Oil® húðkrem skal geyma á köldum stað, fjarri beinu sólarljósi.

ENDURVINNSLA

Allar umbúðir af Bio‑Oil® húðkremi (flaska, lok og askja) eru endurvinnanlegar.

VOTTANIR

Bio‑Oil® húðkrem er vottað Halaal og Kosher.

EKKI PRÓFAÐ Á DÝRUM

Bio‑Oil® húðkrem og hráefni þess eru framleidd í samræmi við reglugerðir ESB um dýraprófanir fyrir snyrtivörur. Hvorki Bio‑Oil® húðkrem, né nokkurt innihaldsefni þess, eru prófuð á dýrum, hvorki af Bio‑Oil né neinum hráefnabirgjum fyrirtækisins.

VEGAN

Bio‑Oil® húðkrem inniheldur engin hráefni úr dýrum.

BREYTT ÚTLIT

Bio‑Oil® húðkrem inniheldur calendula kjarna og ilmkjarnaolíur, ásamt A-vítamín palmítati, sem öll eru ljósnæm. Útsetning fyrir sólarljósi getur valdið litabreytingu með tímanum. Bio‑Oil® húðkrem á að geyma fjarri beinu sólarljósi.

UMBÚÐIR

Vörumynd af Bio‑Oil húðkremi